Fóðrun stofnlagna

Í myndbandinu hér til hliðar er útskýrt í stuttu máli hvernig fóðrun götulagna er framkvæmd.

Við höfum sérhæft okkur í endurgerð lagna án uppgraftar. Aðferðin, sem ber heitið Inpipe, er byltingarkennd. Hún hefur verið notuð víða um heim frá því snemma á áttunda áratugnum með góðum árangri. Viðgerð af þessu tagi veldur litlu raski því lagnirnar eru lagfærðar innan frá.

Nánar um fóðrun lagna hér fyrir neðan

Fibertrefjasokki (Sjá nánar hér: https://www.inpipe.com/our-products/general-product-information/), sem vættur hefur verið í fljótharðnandi plastefni (Resen), er rennt inn í skemmdu lögnina. Hann er svo blásinn í gegnum lögnina með  loftþrýstingi. Þannig leggst hann þétt að og steypist fastur við gömlu lögnina. Sokkurinn er hertur með ljósalest með útfjólubláum ljósum og harðnar nær samstundis – og nýja rörið er tilbúið þegar búið er að opna fyrir aðliggjandi lagnir með fjarstýrðum fræsara. Allt þetta ferli tekur uþb. einn til tvo daga og veldur íbúum litlu ónæði. 

Lagnaklæðningar af þessu tagi henta við ólíkar aðstæður, t.d. er þetta jafngóð aðferð hvort sem lagnir eru lóðréttar eða láréttar, grafnar í jörð eða inni í veggjum. Kostirnir eru ótvíræðir: 

  • Hægt er að lagfæra lagnir á stuttum tíma þar sem ekki þarf að fara út í tímafrekan uppgröft með tilheyrandi raski.

  • Efnið í lagnaklæðningunni er lagað að aðstæðum á hverjum stað – allt eftir því hvað hentar.

  • Framkvæmdir valda litlu ónæði.

  • Lausnin er endanleg. Klæðningin er útbúin með þeim styrk sem þarf til að lögnin endist.

  • Inpipe veitir 50 ára ábyrgð á aðferðinni ef rétt er staðið að framkvæmdinni.