Það er markviss stefna Hreinsitækni að trygging á varfærni í umhverfismálum verði eðlilegur þáttur í allri starfssemi og ákvarðanatöku fyrirtækisins.

Lögð er áhersla á að uppfylla allar kröfur sem gerðar eru til fyrirtækisins í umhverfismálum og sett eru fram í starfsleyfum og skipulagi.

Hreinsitækni ehf leggur ríka áherslu á að vera vakandi fyrir nýjum tæknilegum úrlausnum í starfsemi sinni og tækjabúnaði sem leitt getur til minkunar á losun skaðlegra efna út í umhverfið. Fyrirtækið fer reglulega yfir tækjakost sinn og fylgist vel með nýjungum á tækjabúnaði hvað varðar endurnýjun tækja sem m.a. tryggja betri afköst, aukið öryggi og eru umhverfisvænni.

Umhverfisvernd verður höfð að leiðarljósi í allri starfsemi fyrirtækisins. Meðferð á losun og förgun úrgangsefna ásamt vali á rekstrarvörum taki mið af umhverfisvernd.

Með ofangreind atriði að leiðarljósi vill Hreinsitækni ehf tryggja að fyrirtækið verði í fremstu röð í umhverfismálum meðal fyrirtækja í sambærilegum rekstri.