Hreinsitækni ehf., er leiðandi fyrirtæki á sviði sópunar og þvotta á gatnakerfum og gönguleiðum. Félagið var stofnað árið 1976 og hefur starfað óslitið síðan.

Tækjafloti Hreinsitækni er sá öflugasti sem til er á Íslandi í dag. Flotinn er mjög nýlegur og sambærilegur við það besta sem í boði er hvar sem er í heiminum. Hreinsitækni er nú komið með þá þekkingu og tæki til að geta boðið einstaklingum, fyrirtækjum, sveitar- og bæjarfélögum heildarlausnir í þjónustu á fráveitukerfum og hreinsun á gatna- og gönguleiðum. 

Hjá Hreinsitækni vinnur flottur og fjölbreyttur hópur starfsmanna sem margir hverjir hafa unnið hjá okkur til fjölda ára.

Laus störf í boði