Flotinn stækkaður fyrir 200 milljónir

Hreinsitækni ehf hefur fest kaup á tveimur þjónustubifreiðum af fullkomnustu gerð sem uppfylla ströngustu umhverfisskilyrði. Um er að ræða fjárfestingu upp á tæpar 200 milljónir króna.

Annar bíllinn sem keyptur var safnar úrgangsolíu frá skipum, verkstæðum o.fl. Bíllinn er ADR vottaður sem þýðir að hann uppfyllir öll skilyrði til flutninga á spillefnum. Bíllinn mun fyrst og fremst þjónusta verkstæði, skip og hafnir á stór – Reykjavíkursvæðinu. Hann er vottaður Euro 6, sem er nýjasti umhverfisstaðall fyrir bifreiðar í þessum stærðarflokki. Euro 6 staðallinn tekur bæði til útblásturs og hávaða frá ökutækjum.

Nýr holræsa- og dælubíll hefur einnig bæst í flota Hreinsitækni. Bíllinn uppfyllir alla helstu staðla, svo sem Euro 6 og er mjög afkastamikill. Þessi bíll er mikilvæg viðbót enda vaxandi verkefni á þessu sviði.

Björgvin Jón Bjarnason framkvæmdastjóri Hreinsitækni,

„Þessi nýju tæki eru í senn eðlileg endurnýjun á flota fyrirtækisins en um leið eykst afkastageta okkar. Miklu máli skiptir að fyrirtæki sem sinna umhverfisþjónustu kappkosti að minnka umhverfisfótspor sín, þessi kaup eru liður í þeirri viðleitni. Við leggjum mikla áherslu á að þau tæki sem við notum til að þjónusta okkar viðskiptavini, hvort sem er fyrirtæki eða sveitarfélög, séu traust og umhverfisvæn. Báðir þessir bílar eru komnir í vinnu og tryggja enn betri og öruggari þjónustu af okkar hálfu.“

Báðir bílarnir eru af gerðinni MAN og voru þeir keyptir af umboðsaðila MAN á Íslandi, en það er fyrirtækið Kraftur hf, sem flytur inn og þjónustar MAN. Gott samstarf var við Kraft um endanlega útfærslu bílanna svo að þeir hentuðu sem best þörfum Hreinsitækni.

Nánari upplýsingar veitir Björgvin Jón Bjarnason, framkvæmdastjóri Hreinsitækni í síma 895 8844

 

Previous
Previous

Nýr sölustjóri hjá Hreinsitækni ehf

Next
Next

Hreinsitækni kaupir Varnir og Eftirlit.