Sópun gatna og gangstétta


 
Stéttasópur

Sópun gatna og stærri svæða.

Stærð og útbúnaður götusópa Hreinsitækni er misjafn.
Stærð tunnu er 6-7 rúmmetra, sumir eru með sóp báðu megin sem þýðir að alltaf er hægt að sópa með umferð og þá er sogkraftur þeirra misjafn. Flestir sóparnir eru útbúnir með sérstökum sóp (klóru) á framhorni bílsins sem brýtur upp harðan leir í götuköntum eða bílastæðum.

Við höfum yfir að ráða fullkomnasta og besta tækjaflota landsins, þar sem nýjustu bílarnir með Euro 6 vél og sópkerfið er drifið áfram með glussa en ekki auka afturvél. Þetta gerir götusópana mjög hljóðláta og frá þeim er hávaðamengun stillt í lágmark. Gatnasópar eru notaðir við að sópa götur, bílastæði, flugbrautir, vöruskemmur, bryggjur, athafnasvæði fyrirtækja ofl.

Stéttasópar

Stéttasópar eru hentugir til að sópa auk gangstétta, bílastæði, bílastæðahús, göngu- og hjólreiðastíga, þröng port ofl.

Sóparnir eru búnir sóparm til að ná úr kverkum, úr öllum hornum ofl. Sóparnir eru liðstýrðir sem gerir þeim auðveldara að nálgast verkefnið við erfiðar aðstæður. Sóparnir eru ekki þungir sem gerir þeim kleift að sópa iðnaðargólf og þess háttar. Sópurinn er um 135 cm á breidd og 185 cm á hæð sem gerir aðgengi auðvelt.