DSC00035.JPG

Tæming rotþróa

Hreinsitækni ehf hefur haft í notkun svokallað KSA kerfi til tæmingar á rotþróm með úrvötnun á seyru.
Kerfið byggist á því að innihaldi rotþróa er dælt í bílinn, þar sem seyran er aðskilin frá vatninu og því dælt aftur í rotþróna.

Með þessari aðferð er búið að minnka til muna það efnismagn sem keyra þarf burt frá hverjum stað, ásamt því að rotnunargerillinn helst lifandi í rotþrónni.

Seyruna má síðan annað hvort urða eða blanda hana kalki og nýta sem áburð. Þessi tækni er fljótleg og með henni má skapa vistvæn verðmæti sem er hennar helsti kostur.