Þvottur og olíuslys

Vatnsbílar eru notaðir við þvott á ýmsu td. við hreinsun á bílastæðum og bílakjöllurum. Ásamt vatnsbílnum oftast nær vélsópur með í verkinu sem sópar upp efnið svo það fari sem minnst niður í lagnakerfið.

Á vatnsbílnum er u.þ.b. 100-150m löng slanga sem hægt er að draga út, sprauta úr hornum, þvo yfir gólf eða annað sem þrífa skal. 
Einnig eru spíssar framan á sem hægt er að sprauta með miklum krafti og keyra áfram um leið t.d stór plön eða heilu göturnar ef svo ber undir. 
Ef um olíuslys er að ræða er hægt að nota sérstaka umhverfisvæna sápu með þrifunum.

Greiða sem staðsett er aftan á bílnum er hægt að nota bæði til að úða sápu á stærri olíuslys og hins vegar úða vatni til að t.d rykbinda vegi.